Er að hugsa um að slá færslumet þennan mánuðinn, tvær færslur í einum mánuði – geri aðrir betur.
Ég fékk góða gesti í gærkvöldi/nótt. Hef aldrei verið með miðnæturkaffi áður, maður ætti kannski að gera meira af því. En Soffía og Júlía eru nú komnar á íslenska grundu. Þær stoppuðu aðeins við hjá mér í gær með Sísí og Magnúsi áður en þau brunuðu norður í Fjörðinn fagra, eins og Soffía vill kalla hann
Mikið var nú gaman að sjá þær og fá nú loks að líta hana Júlíu berum augum. Hún er gullfalleg og mannaleg. Hlakka mikið til að hitta hana svo aftur í febrúar þegar hún verður skírð. Ekki var nú síður skemmtilegt að hitta Soffíu mína, höfum ekki sést síðan í júlí. Skrýtið til þess að hugsa að hún sé bara orðin mamma, en um leið ekkert eðlilegra vegna þess að það er eins og hún hafi ekki gert neitt annað. Góð mamma
Hvað er málið með Framsókn? Er hann dáinn? Af hverju er ekki bara útförin auglýst og stofnaður ESB flokkur? Eða Framsókn og Samfylkingin sameinuð. Ég get svarið það. Svo eru þeir að kjósa sér formann. Ef ég væri Frammari myndi ég kjósa Höskuld Þór eða Sigmund Davíð. En ef ég þekki þetta lið rétt verður Páll Magg fyrir valinu. Þeir um það.
Nú er líkamsræktin tekin með trompi VBB og félagi minn úr SÁM píska mér út í gyminu þessa daga. Það er bara hið besta mál ef það ber tilætlaðan árangur. Nú fær mörin að leka og BKBen verður orðin eins og lekker massaköggull (hvernig sem svoleiðis fyrirbæri lítur nú út) innan tíðar. Engin háleit markmið hér á ferð, nei nei. Það skal þó tekið fram að það verða ekki settar inn neinar before and after myndir. Þið verðið bara að gjöra svo vel að heimsækja mig. Stay tuned
Ætla að deila með ykkur uppáhaldslaginu mínu þessa dagana. Pínu og væl og allt það, en það er gott að væla stöku sinnum. Veit allavega að Soffía og Hulda mín Guðmunds fíla þetta.
Jæja, best að fara koma sér í föt og setja upp andlitið. Er að fara með labbakút Erlendi Óla í Ikea. Hversu heppin er ég? Það er ekki leiðinlegt að vera Begga stóra frænka þessa dagana, ó nei
Veriði hress!



















